Suðurnesja Rallý

 

Kjartan og Óli Þór taka flugiðRallið byrjaði í gær Föstudag á Stapanum, gróf leið á milli Njarðvíkur og áleiðis að Vogum, Svo var Nikellinn keyrður sem var mikið sjónarspil þar sem bílar keyrðu stuttann hring á svæði rétt fyrir ofan Keflavík. Áhorfendur sáu bílana mest alla brautina og urðu vitni af því þegar bílarnir slepptu jörðinni í andartök sem virtust heil eilífð.

 

Í beinu framhaldi var haldið niður á Keflavíkurhöfn en höfnin var keyrð endilöng í tvígang þar sem Pétur og Heimir á MMC EVO6 tóku besta tíman í bæði skiptin.

Pétur og Heimir á þversum fyrir síðustu beigju

Þeir tóku svo annað sætið samanlagt eftir dag eitt, en Jón Bjarni og Borgar náðu besta tíma samanlagt, 6 sekúndum á undan Pétri og Heimi og 16 sec á undan Sigurði Braga og Ísak.

 

 

 

 

Rok á StapanumLagði af stað kl 7 í morgun til Suðurnesja til fylgjast með.

Stuttbuxur og stuttermabolur varð fyrir valinu, tók með mér hettupeysu og síðar buxur bara svona til að taka það með mér heim aftur eða hvað.

Fyrsta sérleið morgunsins var keyrð um stapann . Mikið Rok var eins og sjá má á þessari mynd þar sem Pétur og Heimir þjóta hraðast allra, eða í það minnsta með mestu tilþrifum í gegnum beygjuna, en grjót hnullungar skjótast eins og borðtenniskúlur upp í loftið.

2558141339_30caace480_mÞegar leið á daginn byrjaði svo að Rigna og á tíma var eins og hellt væri úr fötu, fleiri en einni og fleiri en tveim.

Lét það ekki á mig fá en myndavélin fékk sinn skerf af regni og verður vonandi ekki meint af. Það var ekkert annað að gera í stöðunni en að nýta sér pollana sem myndast á Djúpavatnsleið en þar myndast oft stórir drullupollar sem verður sýnir átökinn og lætinn.

 

Á RallýkrossbrautinniÞegar Kleifarvatn hafði verið keyrt í tvígang og Djúpavatnsleið í þrígang var haldið á Rallýkrossbrautina þar sem keyrt var tvo hringi á rennandi blautri braut. Fjöldin allur af keilum hafði verið lagður um brautina og eftir því sem ég best veit er hörð refsing við því að fella þær. Þetta dró töluvert úr tilþrifum þeirra, í það minnsta keyrðu flestir mjög öruggt en eins og Nikellinn og höfnin höfðu áhorfendur færi að sjá kappana alla brautina í staðinn.

Keppnin endaði með sigri Péturs og Heimis á EVO6. Sigurður Bragi og Ísak duttu úr keppni og einnig þeir Jón Bjarni og Borgar.

Heildarúrslit má sjá á www.lia.is

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband