4.4.2007 | 22:23
Mátulegur hraði
Gaman að fjömiðlar eru farnir að sýna hjólreiðum meiri og meiri áhuga. Í dag var frétt á mbl.is um Jón Björnsson, sálfræðing og rithöfund, sem ætlar að hjóla svokallaða Silkileið og er áfangastaðurinn Túrkimenistan.
Hann segir að hjólið er frábær ferðamáti , í bíl fer maður of hratt yfir og og missir af svo miklu.
Jón skrifar bækur um ferðir sínar t.d. "Á Jakobsvegi".
Jæja best að fara að heilsa upp á koddan, vakna snemma í fyrramálið og hjóla á Þingvöll.
Á hjóli til Túrkmenistan | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæll Elvar Örn.
Gaman að sjá þig hér. Tek undir því að það sé ánægulegt að sjá umfjöllun um hjólreiðar.
Ætti að taka smá kipp í tengsl við Umferðaöryggisvikuna og Hjólað í vinnuna.
Annars góður punktur hjá Jóni að hraðinn á reiðhjóli sé mátulegur, og að maður séí betri tengsl við umhverfið.
Þetta gildir líka innabæjar fyrir marga. Maður upplifir meira, maður kemst frá A til B á sæmilegum tíma. Sæmilegur hraði þyði líka að maður er ekki að stefna öðrum í hættu. Hjólreiðamenn fara ekki um á ofsahraða, né með tonni af stáli meðferðis.
Morten Lange, 7.4.2007 kl. 00:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.